Það að fá að gefa út 300 þætti fyrir hlustendur eru tímamót sem engan óraði fyrir þegar þessi vitleysa byrjaði öll árið 2019 og þess vegna ætla Unnur og Bylgja að blása til veislu!
Það verður farið yfir stóru málin, ákveðið uppgjör allra þessara þátta mun eiga sér stað (vonandi uppgjöf eða uppköst), ýmis konar yfirferð, spjall, góðir gestir (vonandi, ef einhver vill koma) og mikil stemning.
Vonumst til að sjá ykkur sem flest!
Athugið að þetta er sitjandi viðburður.
Það er ekki selt í númeruð sæti.
Hús opnar kl. 18:00
Viðburður hefst stundvíslega kl. 20:00