Algengar spurningar

Tónleikar og sýningar

Í lang flestum tilfellum er aldurstakmark á viðburði í Austurbæjarbíó 20 ára. Í undantekningartilfellum er leyfilegt að sækja viðburði þegar gestur er eldri en 18 ára og eru þeir viðburðir merktir sérstaklega. Í því tilfelli þarf að sýna skilríki við inngang. Nauðsynlegt er að sýna fram á 20 ára aldur til þess að geta verslað áfengi á barnum og verður gestum útvegað sérstök armbönd til þess.

Gestir yngri en 18 ára geta ekki sótt viðburði í Austurbæjarbíói, nema ef til vill á viðburðum sem eiga sér stað að degi til þar sem engin áfengissala fer fram. 

Athugið að á viðburðarsíðu hvers viðburðar hér á austurbaejarbio.is má finna upplýsingar um aldurstakmörk og hvaða reglur gilda hverju sinni fyrir hvern viðburð. Vinsamlegast kynnið ykkur reglur áður en miði er keyptur. Miðar eru ekki endurgreiddir.

Vinsamlegast hafðu samband við viðburðarhaldara. Þú getur yfirleitt fundið upplýsingar um viðburðarhaldara á viðburðarsíðu. Ef spurningin varðar miðasölu þá er best að hafa samband við miðasöluaðila beint (Tix, Stubb, osfv.)

 

Húsið opnar yfirleitt einni klukkustund áður en auglýst dagskrá hefst, nema annað sé tekið fram á miðanum þínum. Við mælum með að fólk mæti tímanlega til að njóta stemningarinnar á barnum fyrir sýningu.

Já, við bjóðum upp á mönnuð fatahengi á stærri viðburðum gegn vægu gjaldi.

Já, húsið er aðgengilegt (klósett fyrir hreyfihamlaða og lyftur)

Tapað & fundið

Vinsamlegast kíktu til okkar á opnunartíma Bullseye, við getum ekki svarað slíkum spurningum í gegnum skilaboð.

Almenn fyrirspurn

Ath: ef þú vilt bóka sal fyrir viðburð vinsamlegast fylltu út formið hér.

Vertu fremst í röð

Fáðu fréttir um viðburði í austurbæjarbíói