Fílalag snýr aftur í poppdómkirkju Íslands, Austurbæjarbíó föstudagskvöldið 6. febrúar 2026.
Fílahjörðin sameinast við vatnsból dýrðarinnar á ný og Snorri og Bergur stýra fílun á einhverju vel völdu gúmmelaði.
Hjörðin fyllti húsið síðast og má búast við að færri fílar komist að í þetta skiptið en vilja.
Athugið. Þetta er sitjandi viðburður en ekki er selt í númeruð sæti.
Hús opnar kl 18:00
Fílun hefst á slaginu 20:00