Brimbrot heldur hátíðartónleika í tilefni af útgáfu smáskífunnar “Leyndarmál / Kling Klang”. Um er að ræða útfærslu Brimbrot á þessum 2 lögum eftir Þóri Baldursson sem Dátar gerðu vinsæl á sínum tíma og hafa lifað góðu lífi með þjóðinni. Þessi útgáfa Brimbrots hefur blásið nýju lífi í þessar gömlu glæður og Kling-Klang hefur fengið töluverða spilun í útvarpi. Enda fellur þessi eitursvala tónsmíð vel að töffarastíl hljómsveitarinnar. Smáskífan kemur út á 7 tommu vínyl í mjög takmörkuðu upplagi og verður einungis til sölu á tónleikunum ásamt öðrum varningi. Björn Stefánsson syngur lögin á plötunni, en hann er einmitt sonur Stefáns trommara í Dátum. Bæði Björn og Þórir verða sérstakir gestir á tónleikunum og ekki útilokað að fleiri Dátalög eða önnur frá svipuðum tíma muni hljóma.
Brimbrot sækir innblástur til jafns í bandarískt surf-rokk og íslenska sjómennsku frá miðri síðustu öld. Útkoman er grípandi og dansvæn og hefur tónlistinni verið lýst sem fatafellutónlist úr Tarantino mynd. Brimbrot gáfu út sína fyrstu breiðskífu fyrir tæpu ári og eru þegar farnir að semja ný lög og undirbúa upptökur með vorinu. Ný lög verða því frumflutt á tónleikunum í bland við lögin af plötunni.
Silfurtunglið er nýr og glæsilegur tónleikastaður á efri hæð Austurbæjarbíós og fær nú aftur nafn og blæ þess skemmtistaðar sem var í húsinu um árabil.
Brimbrot eru: Bjarni M Sigurðarson – Gítar Erik Qvick – Trommur Hallur Ingólfsson – Bassi Jens Hansson – Saxafónn
Húsið opnar kl 21 og tónleikarnir hefjast rétt uppúr kl. 22.