Fram koma:
20.00 Glataðir snillingar – sem leika frumsamin lög þar af eitt sem gefið verður út á Spotify á tónleikunum. Hljómsveitina skipa Hermann Sæmundsson (trommur og kassagítar), Baldur Eiríksson (bassi) og Guðlaugur Hjaltason (gítar og söngur). Með þeim leikur einnig Örvar Erlingsson (trommur) og óvæntur gestasöngvari.
20.30 Bára og Dúddarnir – sem leikur aðallega þekkt instrumental lög eftir ýmsa höfunda, meðal annars Chick Corea, Weather report og Jethro Tull. Guðbrandur Ægir Ásbjörnsson stórsöngvari úr Skagafirði tekur einnig nokkur lög með sveitinni. Hljómsveitina skipa Bára Sigurjónsdóttir (blásturshljóðfæri), Lárus Halldór Grímsson (hljómborð og flauta), Sævar Árnason (gítar), Sveinn Frímann Bjarnason (bassi) og Sigurður Reynisson (trommur).
21.30 Frænkurnar – sem er ein fjölmennasta kvennahljómsveit landsins um þessar mundir og leika þær fjölbreytta tónlist héðan og þaðan. Sannkölluð 19. júní hljómsveit, en hana skipa Addý (trommur), Búbba (bakrödd) Guðrún Helga (bassi), Ragnheiður (hljómborð), Rósalind (söngur), Rúna (gítar), Sóley (gítar) og Stína (slagverk).
22.20 Emajor – leikur kraftmikið blús-rokk af gamla og nýja skólanum þar sem skiptast á tregafullar ballöður, pumpandi stuðlög og nostalgíuhlaðin verk meistaranna. Sveitina skipa Dallilja Sæmundsdóttir (söngur), Daði Halldórsson (gítar), Hans Högnason (gítar), Gautur Þorsteinsson (hljómborð), Ólafur Friðrik Ægisson (bassi) og Steingrímur Bergmann Gunnarsson (trommur).
Skúraleiðingar 2026 er ausandi rokk, popp og fönk veisla.
Miðar á Stubbur.is og aðeins 2.500 kr. inn.
https://facebook.com/events/s/skuralei%C3%B0ingar/886133243768781/