Splunkuný tegund af erótík með Jólabjöllunum

Jólabjöllurnar snúa aftur og í þetta sinn með splunkunýja tegund af erótík!

Sönghópurinn sem hefur glatt, hneykslað og kitlað hláturtaugar landsmanna í meira en áratug býður til stórskemmtilegra jólatónleika fimmtudaginn 19. nóvember kl. 19:30 í Silfurtunglinu, Austurbæjarbíó.

Á efnisskránni verður að venju góð blanda af eldri lögum og glænýjum sem hafa fengið hina sérstæðu Jólabjöllumeðferð. Klassísk lög fá nýtt líf, textarnir fara gjarnan þangað sem aðrir þora ekki og fátt ef nokkuð er heilagt.

Að venju verður líka æsispennandi happdrætti með glæsilegum vinningum og hægt verður að næla sér í spennandi varning á staðnum – tilvalið fyrir þau sem eiga allt.

Allir textar eru á íslensku – öll velkomin. Við bendum þó á að tónleikarnir henta ekki einstaklingum undir 20 ára aldri.

Komdu og kynntu þér splunkunýja tegund af erótík með Jólabjöllunum – við lofum að að jólin verða aldrei söm aftur. 🔔✨

Aldurstakmark: 20 ára

Dagsetning 19. nóvember 2026

Miðaverð 5.900 kr.

Salur Silfurtunglið

Vertu fremst í röð

Fáðu fréttir um viðburði í austurbæjarbíói

Um aldurstakmörk

20 ára
Einungis 20 ára og eldri, engar undantekningar.

18 ára
Einungis 18 ára og eldri, engar undantekningar.

16 ára
Einungis 16 ára og eldri, engar undantekningar.

18/20 ára nema í fylgd með foreldri 
Tónleikagestur þarf að vera í fylgd með foreldri eða forráðamanni á meðan viðburði stendur. 

Miðar fást ekki endurgreiddir ef gesti er meinað inngöngu vegna aldurstakmarks.
Nánar um aldurstakmark og reglur einstakra viðburða má finna á viðburðarsíðu.