Nú stöppum við í okkur stálinu fyrir komandi átök, stillum strengi svo um munar og búum okkur undir hátíð ó-hljóðs ó-friðar.
Í tilefni af 40 árum af Smekkleysu höfum við þeytt í lúðra vora, kallað saman herskara hljómsveita og tónlistarfólks og blásið til allsherjar tónlistarveislu í Austurbæjarbíói laugardaginn 12. desember.
Þar munu ólíkir hljóðheimar takast á, gamlir kunningjar stíga fram og nýir ófriðarseggir láta til sín taka. Enginn veit með vissu hvað úr verður, en eitt er víst: Það verður ekki hljótt.
Að fjörutíu árum liðnum er lítið annað eftir en að telja niður.
FRAM KOMA
Purrkur Pillnikk
Virgin Orchestra
Kaktus Einarsson
Supersport
Sucks to be you nigel
sideproject
knackered
Ex girls
Ásta Fanney
Gyða Valtýsdóttir
Lára
Gróa
Curver
Gross
Stirnir
Gísli Pálmi
Smekkleysa 40 — World Domination or Death