Austurbæjarbíó er eitt áhugaverðasta kennileiti Reykjavíkur og býður upp á einstakt umhverfi fyrir hvers kyns samkomur. Allt frá glæsilegum sölum sem henta fyrir ráðstefnur og árshátíðir, yfir í lokuð og persónulegri rými fyrir hópa.
Við leggjum metnað í að sníða hverja upplifun að þörfum hvers og eins – hvort sem það er hátíðleg kvöldverðarveisla í sögulegum sal eða lífleg samkoma þar sem hægt er að nýta afþreyinguna hjá Bullseye.
Stóri salurinn okkar er rými sem skilur eitthvað eftir sig. Þetta er gamli bíósalurinn þar sem Kinks spiluðu og Elvis Presley lifnaði við á tjaldinu. Hér mætast sögulegur glæsileiki og nýjasta tækni til að skapa ógleymanlega upplifun.
Píluspjöldin í salnum eru frábær viðbót fyrir starfsmannaskemmtanir, en það er lítið mál að fela þau til að kalla fram hátíðlegan blæ fyrir brúðkaup eða ráðstefnur.
Salurinn getur tekið á sig ýmsar myndir og hentar því jafn vel undir sveitaböll, brúðkaup, tónleika (bæði standandi og sitjandi) eða magnaða starfsmannaskemmtun.
Það er lítið mál að setja upp bari í salnum svo þú þurfir aldrei að fara langt og getir einbeitt þér að því að skemmta þér. Eldhúsið er ekki langt undan og því auðvelt að reiða fram dýringis kræsingar.
Stóri salurinn er með stórt svið og nýjar græjur – hljóðkerfi, ljós og stóran LED skjá – þannig að þú ættir ekki að þurfa að leigja inn búnað.
Efri hæð Austurbæjarbíós á sér merka sögu sem einn vinsælasti skemmtistaður borgarinnar á árunum 1955–1975. Í dag hefur rýmið verið endurvakið sem glæsilegur og fjölhæfur salur þar sem sögulegur sjarmi mætir nútíma þægindum. Hvort sem þú ert að skipuleggja árshátíð, tónleika eða vinnufund, þá býður Silfurtunglið upp á einstaka stemningu.
Í salnum eru píluspjöld sem þér er velkomið að nýta þegar salurinn er leigður, en einnig er hægt að breyta þeim í fallega ljósaskúlptúra þegar þau eru ekki í notkun (sjá mynd).
Karaoke herbergi er á staðnum sem þú getur nýtt þegar salurinn er leigður. Einnig er hægt að bjóða upp á karaoke á sviði.
Sérinngangur, sérklósett og sérbar þannig að þínir gestir geta verið alveg út af fyrir sig.
Í salnum er hægt að sejta upp lítið svið og flott. hljóðkerfi. Á veggjunum eru stórir 65” skjáir og tveir skjávarpar, þannig þú getur sýnt myndir eða sungið af hjartans lyst.
Neðri hæðin er hjarta hússins og tengir saman okkar glæsilegu sali. Þetta er fjölhæft rými sem er hægt að nýta til að tryggja að skipulag og flæði viðburðarins sé til fyrirmyndar, hvort sem um ræðir fjölmenna tónleika eða árshátíð.
Tilvalið fyrir:
Greitt aðgengi að bæði Stóra salnum og Silfurtungli á efri hæðinni. Þetta gerir skipuleggjendum kleift að keyra stóra viðburði í mörgum rýmum samtímis án þess að gestir upplifi þrengsli eða rugling.
Hér er aðalbar hússins, snyrtingar og salerni fyrir hreyfihamlaða. Auðvelt er að hylja píluspjöld, eða hafa þau aðgengileg fyrir gesti.
Eitt af okkar karaoke herbergjum er staðsett í rýminu sem er geysilega vinsælt þegar líður á kvöld, tilvalið til að brjóta ísinn!
Fullkomið svæði fyrir móttökur, skráningu gesta eða kynningarbása. Hér geta gestir dregið sig hlé, spjallað í rólegra umhverfi og notið veitinga á meðan dagskrá stendur yfir í sölunum.
Austurbæjarbíó rúmar allt að 1.000 manns og er tilvalinn staður fyrir árshátíðir, ráðstefnur – jafnvel heilu tónlistarhátíðirnar! Möguleikarnir eru endalausir! Fylltu út formið og við höfum samband um hæl.
"*" indicates required fields