
Síðan 1947
Tónleikahús, kvikmyndahús, skemmtistaður, leikhús og pílustaður. Í næstum 80 ár hefur Reykjavík komið saman á Snorrabraut 37.

1945–1947
Austurbæjarbíó reis á Snorrabraut, sem þá hét enn Hringbraut, á lokaárum seinni heimsstyrjaldar. Að byggingunni stóðu forystumenn Tónlistarfélagsins í Reykjavík, meðal annars Ragnar Jónsson í Smára og Ólafur Þorgrímsson, og hugmyndin var að reisa hús fyrir tónleika jafnt og kvikmyndir. Það gerir Austurbæjarbíó að einu fyrsta húsi landsins sem var hannað sérstaklega fyrir tónleikahald.
Arkitektarnir Hörður Bjarnason og Gunnlaugur Pálsson teiknuðu húsið í fúnkisstíl. Salurinn tók um 800 manns í sæti á einu gólfi og sviðið rúmaði 40 manna hljómsveit. Í anddyrinu var loftið einn stór spegill og þar hékk málverk Gunnlaugs Schevings, Landsýn.
Húsið var opnað 25. október 1947 og var þá stærsta samkomuhús landsins. Fyrstu myndirnar á tjaldinu voru gamanmynd Marx-bræðra, Hótel Casablanca, og tónlistarmyndin Ég hef ætíð elskað þig, þar sem Arthur Rubinstein lék á píanóið.


Heimild: Morgunblaðið 24. október 1997, Ísmús
1947–1955
Tónleikarnir hófust strax. Jórunn Viðar hélt þar sína fyrstu píanótónleika á Íslandi 5. nóvember 1947, aðeins rúmri viku eftir opnun, og 9. mars 1950 lék Sinfóníuhljómsveitin sína fyrstu tónleika í salnum undir stjórn Róberts Abrahams Ottóssonar.
Á milli kvikmyndasýninga fylltist húsið af tónleikum og miðnæturrevíum, og erlent listafólk kom gjarnan við á leið sinni milli Evrópu og Ameríku, til dæmis sænski söngvarinn Snoddas. Biðraðirnar náðu stundum fyrir hornið.



Heimild: Ísmús, Morgunblaðið 27. júlí 2004
1955–1975
Árið 1955 opnaði skemmtistaðurinn Silfurtunglið á efri hæðinni. Nafnið kom úr leikriti Halldórs Laxness sem hafði verið frumsýnt árið áður. Staðurinn sló strax í gegn, bæði sem kaffihús og sem dansstaður unga fólksins, og þegar mest var var opið sex kvöld í viku og lifandi tónlist á hverju kvöldi.
Hljómsveit José Riba var fyrsta húshljómsveitin og á eftir henni komu sveitir eins og Hljómsveit Aage Lorange og Tríó Reynis Sigurðssonar. Með rokkinu og bítlinu komu Sóló, Pónik, Hljómar og Flowers, og hippakynslóðin átti Júdas, Mána og Óðmenn.
Vínveitingaleyfið kom árið 1960 og með því meiri læti, sem nágrannarnir í Norðurmýrinni voru ekki sáttir við. Borgarráð endurnýjaði ekki leyfið haustið 1975 og Silfurtunglið lokaði í október það ár. Nafnið hefur þó fylgt efri hæðinni allar götur síðan.



Heimild: Glatkistan
September 1965
Fáir tónleikar hússins eru jafn lengi í minnum hafðir og þegar The Kinks léku í Austurbæjarbíói í september 1965. Hér fyrir neðan er fréttamynd frá tónleikaferð sveitarinnar þetta haust.


1985–2002
Sambíóin eignuðust húsið árið 1985 og tveimur árum síðar fékk það nafnið Bíóborgin. Húsið var endurbætt og varð fyrsta kvikmyndahús landsins með THX-hljóðkerfi. Árið 1997 var haldið upp á fimmtíu ára afmælið með afmælisverði á sýningar.
Bíóborgin sýndi síðustu myndirnar 11. júlí 2002. Myndirnar hér fyrir neðan voru teknar í anddyrinu skömmu áður.




Heimild: Morgunblaðið 24. október 1997
2002–2020
Eftir að bíóinu var lokað stóð til að rífa húsið og byggja íbúðir á lóðinni. Borgin hafnaði því og Austurbæjarbíó lifði áfram sem leikhús, tónleikastaður og vinnuaðstaða listafólks. Þar voru settir upp söngleikir og fyrsta þáttaröð Ísland Got Talent var tekin upp í stóra salnum árið 2014.
Árið 2017 opnaði þar safnið Tales from Iceland, með stuttmyndum fyrir ferðamenn um íslenska náttúru, sögu og tónlist. Safninu var lokað árið 2020.
2020
Pílustaðurinn Bullseye opnaði í húsinu árið 2020 og kom af stað píluæðinu sem hefur gengið yfir landið síðan. Húsið fylltist aftur af fólki og tekur nú á móti tugþúsundum gesta á ári.
2025 og áfram
Árið 2025 tóku nýir rekstraraðilar við húsinu. Stefnan er að færa það nær upprunalegu útliti sínu og efla tónleikahald á ný. Tónlistarhátíðin Innipúkinn fór fram í húsinu um verslunarmannahelgina 2025 á tveimur sviðum fyrir þúsundir gesta, og fleira er á leiðinni.
Komdu á tónleika, haltu þinn eigin viðburð eða kíktu í pílu. Næsti kafli verður skrifaður á Snorrabraut.
Glatkistan, „Silfurtunglið [tónlistartengdur staður]“ (2021). Ísmús, Austurbæjarbíó. Morgunblaðið 24. október 1997 og 27. júlí 2004. Birgir Pétur Þorsteinsson, Gömlu bíóin, MA-ritgerð við Háskóla Íslands (2016). Ljósmyndir birtar með leyfi; ljósmyndara er getið þar sem hann er þekktur. Veistu meira um söguna eða áttu myndir? Hafðu samband.