AMY

Amy Winehouse þarf nú varla að kynna. Öll þekkjum við hennar frægustu lög sem mörg hafa snert við okkur á einn eða annan hátt og svo auðvitað hennar einstöku rödd. Leik- og söngkonan Gunnella Hólmarsdóttir flytur þau öll við undirleik einvala liðs hljóðfæraleikara á þessum frásagnartónleikum sem slógu í gegn á síðasta ári og þá komust færri að en vildu!

En hvað vitum við ekki um Amy og hvað finnst okkur um textana hennar? Um lífstílinn, sjálfseyðingarhvötina og neysluna sem dró hana að lokum til dauða.  Gunnella mun fara yfir sögusvið Amy, ýmsar pælingar um lögin, textana og hennar stuttu ævi á sinn einstaka máta með tilþrifum.

Flytjendur:

Söngur: Gunnella Hólmarsdóttir
Gítar: Birkir Rafn Gíslason
Bassi: Guðni Finnsson
Trommur: Arnar Gíslason
Hljómborð: Daði Birgisson
Baritón sax: Rósa Guðrún Sveinsdóttir
Trompet: Eiríkur Rafn Stefánsson

Húsið opnar kl 19:00
Tónleikar hefjast kl 20:00

Viðburðurinn er sitjandi en ekki er selt í númeruð sæti. VIð hvetjum því gesti til að mæta tímanlega.

20 ára aldurstakmark nema í fylgd með fullorðnum

Aldurstakmark: 20 ára nema í fylgd með foreldri

Dagsetning 29. maí 2026

Miðaverð 7.990

Salur Stóri Salur

Vertu fremst í röð

Fáðu fréttir um viðburði í austurbæjarbíói

Um aldurstakmörk

20 ára
Einungis 20 ára og eldri, engar undantekningar.

18 ára
Einungis 18 ára og eldri, engar undantekningar.

16 ára
Einungis 16 ára og eldri, engar undantekningar.

18/20 ára nema í fylgd með foreldri 
Tónleikagestur þarf að vera í fylgd með foreldri eða forráðamanni á meðan viðburði stendur. 

Miðar fást ekki endurgreiddir ef gesti er meinað inngöngu vegna aldurstakmarks.
Nánar um aldurstakmark og reglur einstakra viðburða má finna á viðburðarsíðu.