Dr. Football og Þjóðmál sameina krafta sína á ný og færa þjóðinni upplýsingar og skemmtun samhliða því sem tölur berast úr komandi sveitarstjórnarkosningum.
Fyrirkomulag
Við komum saman á efri hæðinni í Austurbæjarbíó þar sem rýnt verður í helstu tölur, farið yfir það helsta í kosningabaráttunni, niðurstöður kosninga og margt annað. Viðburðinum verður streymt en auk þess verður takmarkað sætaframboð í húsi.
Miðum á viðburðinn fylgja veitingar frá Kjötkompaníinu og kaldar veigar frá Kampavínsfjélaginu og Kalda.
Sætaskipan
Athugið að ekki eru seldir stakir miðar á viðburðinn heldur heil borð sem eru fyrir allt að fjóra. Sé hins vegar valið að kaupa tvö borð í kaupferlinu fæst eitt stórt borð fyrir allt að átta manns.