

Afmælistónleikar í tilefni af 20 ára útgáfuafmæli þessarar goðsagnakenndu jólaplötu.
Ora grænar baunir, Gunnars majones og Malt & Appelsín kynna:
Einstakir jólatónleikar
20 ára afmæli Majones Jóla með Bogomil Font og Stórsveit Reykjavííkur undir stjórn Samúels Jóns Samúelssonar.
Flutt verður platan Majones Jól í heild sinni ásamt nokkrum skemmtilegum jólabombum og von er á góðum gestum.
Þetta eru einstakir tónleikar þannig að miðaval er takmarkað.
Majones Jól eru sannkallað jólaball þar sem dansinn dunar og jólastemningin ræður ríkjum. Athugið að viðburðurinn er standandi.
20 ára aldurstakmark.
Spurning um viðburðinn? Hafðu samband við viðburðarhaldara. Upplýsingar eru birtar með fyrirvara og geta breyst.