Meira BAROKK á klúbbnum

Meira og stærra barrokk en nokkru sinni fyrr! Fleiri ljós, þyngri bassi, stærri hljómsveit og meiri Bach í Austurbæ á State of the Art 2026!

Barokk á klúbbnum snýr aftur eftir gífurlegar vinsældir undanfarin tvö ár. Síðast komust færri að en vildu. Ekki sitja eftir með sárt ennið. Nældu þér í miða í tæka tíð! ATH fyrstu hundrað miðarnir á sérstöku “early bird” verði!

Hvar sómir sígíld tónlist sér best? Á hljóðfæratónlist barokktímabils 17. og 18. aldar eitthvað erindi í dag? Á tónlistarhátíðinni State of the Art verður þetta kannað með tónleikunum BAROKK Á KLÚBBNUM 10. október kl 21 í Austurbæ. Nokkur þekktustu verk tímabilsins verða flutt af strengjum, semballeikara í ljósa- og reykvéladýrð næturklúbbsins AUTO á Lækjargötu. En á sviði með strengja og semballeikurunum verður einnig athafnarstjóri trommuheila og rafhljóða sem mun leiða Vivaldi og Bach inn á slóðir 21. Aldar og skapa tónavafning sem þú getur hvergi annarsstaðar heyrt en á State of the Art.

Miðaverð er 4.999 kr. Tónleikarnir eru 10. október kl 21 í Austurbæjarbíói!
Einnig er hægt að næla sér í hátíðarpassa á State of the Art sem veitir aðgang að öllum viðburðum hátíðarinnar.

Aldurstakmark: 20 ára

Dagsetning 10. október 2026

Miðaverð 4.999

Salur Stóri Salur

Vertu fremst í röð

Fáðu fréttir um viðburði í austurbæjarbíói

Um aldurstakmörk

20 ára
Einungis 20 ára og eldri, engar undantekningar.

18 ára
Einungis 18 ára og eldri, engar undantekningar.

16 ára
Einungis 16 ára og eldri, engar undantekningar.

18/20 ára nema í fylgd með foreldri 
Tónleikagestur þarf að vera í fylgd með foreldri eða forráðamanni á meðan viðburði stendur. 

Miðar fást ekki endurgreiddir ef gesti er meinað inngöngu vegna aldurstakmarks.
Nánar um aldurstakmark og reglur einstakra viðburða má finna á viðburðarsíðu.