Palli og Benni munu fagna útgáfu plötunnar Alveg með því að spila hana alla í gegn, ásamt eldri smellum þeirra. Þeir verða langt í frá einir á sviðinu en þeir eru búnir að búa til frábæra hljómsveit sem kemur hér fram í fyrsta sinn í Austurbæjarbíói. Auk þess verður Kórinn, sem hefur átt farsælt samstarf við Benna Hemm Hemm síðastliðin ár, hluti af hljómsveitinni á þessum einstöku tónleikum.