Sailesh

FM957 kynnir:

Hin stórkostlega grín-dávald Sailesh

Hinn heimsfrægi Sailesh snýr aftur til Íslands með splunkunýja sýningu, byggða á góðum grunni – og enginn verður svikinn.

Sýningin verður sett upp á Akureyri, Selfossi og í Reykjavík.

Fimmtán ár eru liðin síðan Sailesh kom fyrst til landsins og sló eftirminnilega í gegn hjá þjóðinni. Sýningin er uppfull af ótrúlegum uppákomum þar sem áhorfendur verða sjálfir að stjörnum kvöldsins – fyrir framan vini og vandamenn sem gráta af hlátri við að sjá félaga sína fara á kostum á sviðinu.

Sailesh er meðal annars þekktur fyrir að geta látið fólk upplifa fullnægingu með því einu að taka í höndina á því. Sýningum hans hefur verið hampað víða um heim sem nýrri og byltingarkenndri tegund skemmtunar.

Athugið: Sýningarnar eru alls ekki fyrir börn.
Aldurstakmark er 18 ár, en 16 ára og eldri mega mæta í fylgd forráðamanns.

Um sýninguna segja fjölmiðlar:

„Fyndnasti óritskoðaði dávaldurinn á jörðinni.“

– MTV Europe„Sjúklega fyndin sýning! Ég hef ekki hlegið svona mikið í mörg ár.“

– R.R., Miami Herald„Taktu með þér vasaklút og hreinar nærbuxur. Ég lofa því að þú munt gráta af hlátri – og það eru góðar líkur á því að þú missir þvag að auki.“

– P.V., Arizona Daily Star„Ég hló eins og brjálæðingur. Fór aftur á sýninguna – og hló eins og geðsjúklingur. Drottinn minn dýri, ég hef aldrei lent í öðru eins.“

– M.R., Reno Gazette-Journal„Hvergi í heiminum færðu annan eins skammt af bröndurum á 2,5 klukkustundum. Kraftmikil og sjúklega fyndin sýning!“
– B.W., Apollo Guide

 🔥 Ekki missa af brjálaðasta grínkvöldi ársins – tryggðu þér miða áður en það verður uppselt! 

Aldurstakmark: 18 ára nema í fylgd með foreldri

Dagsetning 17. apríl 2026

Miðaverð 8.900

Salur Stóri Salur

Um aldurstakmörk

20 ára
Einungis 20 ára og eldri, engar undantekningar.

18 ára
Einungis 18 ára og eldri, engar undantekningar.

16 ára
Einungis 16 ára og eldri, engar undantekningar.

18/20 ára nema í fylgd með foreldri 
Tónleikagestur þarf að vera í fylgd með foreldri eða forráðamanni á meðan viðburði stendur. 

Miðar fást ekki endurgreiddir ef gesti er meinað inngöngu vegna aldurstakmarks.