TV Girl

Garcia Events kynnir:
TV GIRL í Austurbæjarbíó

Bandaríska indípopp hljómsveitin TV Girl kemur fram í Austurbæjarbíó þann 24.maí. Leið hljómsveitarinnar, sem stofnuð var í Kaliforníu árið 2010, upp á stjörnuhimininn er ein sú ótrúlegasta í tónlistarsögu nútímans. Síðastliðin ár hafa lög hennar, sum hver hátt í 15 ára gömul, notið gífurlegra vinsælda á streymisveitum og samfélagsmiðlum í fyrsta sinn frá útgáfu þeirra og þessi dularfulla sveit sankað að sér afar dyggum aðdáendum um allan heim.

Meðal þeirra má nefna lögin “Lovers Rock”, “Cigarettes out the Window” og “Not Allowed” sem safnað hafa yfir 3.7 milljarða streyma. Hljómsveitin kemur við í Austurbæjarbíó tónleikaferðalagi sínu um Evrópu þar sem sveitin kemur meðal annars fram á Primavera hátíðinni í Barcelona og beint í kjölfar ferð sveitarinnar um Suður Ameríku þar sem hún kemur meðal annars fram á Lollapalooza hátíðinni í Buenos Aires og Sao Paulo.

Aldurstakmark: 18 ára

Dagsetning 24. maí 2026

Miðaverð 9.900

Salur Stóri Salur

Vertu fremst í röð

Fáðu fréttir um viðburði í austurbæjarbíói

Um aldurstakmörk

20 ára
Einungis 20 ára og eldri, engar undantekningar.

18 ára
Einungis 18 ára og eldri, engar undantekningar.

16 ára
Einungis 16 ára og eldri, engar undantekningar.

18/20 ára nema í fylgd með foreldri 
Tónleikagestur þarf að vera í fylgd með foreldri eða forráðamanni á meðan viðburði stendur. 

Miðar fást ekki endurgreiddir ef gesti er meinað inngöngu vegna aldurstakmarks.