Innipúkinn 2026

Innipúkinn hefur löngum verið griðastaður þeirra sem kjósa malbik fremur en útileguna um verslunarmannahelgina. Í ár ætlum við okkur enn stærri hluti og dagskráin endurspeglar fjölbreytni og kraft sem einkennir íslenska tónlistarsenu í dag. Partíbönd, danstónlist, rokk og ról mæta öll spennt, hress, þurr og pínu full.

Hér þarf engan prímus eða gúmmístígvél, bara mæta með góða dansskó og fá sér einn ískaldan Gull Lite fyrir stærsta innipartí ársins. Svo leggjast allir í þægilegt rúm og fá góðan nætursvefn áður en partýið heldur áfram í þrjá daga og þrjú kvöld.

Fjölbreyttir viðburðir fara fram í kringum Innipúkann, sem verða tilkynntir síðar.

Aldurstakmark: 20 ára

Dagsetning 31. júlí - 2. ágúst

Miðaverð 11.990 <

Salur Allt húsið

Vertu fremst í röð

Fáðu fréttir um viðburði í austurbæjarbíói

Um aldurstakmörk

20 ára
Einungis 20 ára og eldri, engar undantekningar.

18 ára
Einungis 18 ára og eldri, engar undantekningar.

16 ára
Einungis 16 ára og eldri, engar undantekningar.

18/20 ára nema í fylgd með foreldri 
Tónleikagestur þarf að vera í fylgd með foreldri eða forráðamanni á meðan viðburði stendur. 

Miðar fást ekki endurgreiddir ef gesti er meinað inngöngu vegna aldurstakmarks.
Nánar um aldurstakmark og reglur einstakra viðburða má finna á viðburðarsíðu.