OASIS heiðurstónleikar

X 97.7 kynnir: 35 ár eru nú liðin frá stofnun bresku hljómsveitarinnar OASIS í Manchester á Englandi. Sveitin sendi frá sér sjö breiðskífur á árunum 1994 til 2008 en lagði upp laupana árið 2009 eftir röð atvika milli forsprakka sveitarinnar, bræðranna Liam og Noel Gallagher. Hljómsveitin kom saman á síðasta ári og hélt í tónleikaferðalag víðsvegar um heiminn og komust færri að en vildu, svo ekki sé minna sagt. Margir Íslendingar sátu uppi með sárt ennið, enda sveitin aldrei heldur spilað á Íslandi yfir ferilinn. Hópur íslenskra tónlistarmanna og aðdáenda sveitarinnar hefur því tekið sig saman og hyggst flytja öll bestu lög sveitarinnar með stælum á Græna Hattinum á Akureyri, Silfurtunglinu í Austurbæ í Reykjavík og í Bæjarbíói í Hafnarfirði. Verður allt lagt í sölurnar, hækkað vel í og sungið sig hása en þó, í mesta bróðerni þar sem nostalgía tíunda áratugarins flæðir í gegnum ærandi gítara og einstaka kvöldstund sem vottar þessari stórkostlegu sveit virðingarvott og tekur hattinn ofan.

Hljómsveitina skipa: Daníel Hjálmtýsson – söngur/slagverk
Guðmundur Stefán Þorvaldsson – gítar
Hálfdán Árnason – bassi
Heiðar Örn Kristjánsson – söngur/gítar
Helgi Birgir Sigurðsson – trommur
Helgi Rúnar Gunnarsson – gítar
Jón Ingimundarson – hljómborð

Nú er að finna anorakkinn, Adidas skóna og Kangol hattinn og gíra sig

Miðaverð: 6.990 í forsölu // 7.990 við hurð
Húsið opnar 20:00 Tónleikar hefjast: 21:00
20 ára aldurstakmark

Aldurstakmark: 20 ára

Dagsetning 21. nóvember 2026

Miðaverð 6.990

Salur Silfurtunglið

Vertu fremst í röð

Fáðu fréttir um viðburði í austurbæjarbíói

Um aldurstakmörk

20 ára
Einungis 20 ára og eldri, engar undantekningar.

18 ára
Einungis 18 ára og eldri, engar undantekningar.

16 ára
Einungis 16 ára og eldri, engar undantekningar.

18/20 ára nema í fylgd með foreldri 
Tónleikagestur þarf að vera í fylgd með foreldri eða forráðamanni á meðan viðburði stendur. 

Miðar fást ekki endurgreiddir ef gesti er meinað inngöngu vegna aldurstakmarks.
Nánar um aldurstakmark og reglur einstakra viðburða má finna á viðburðarsíðu.