Retro Stefson er 20 ára í ár. Í tilefni af því heldur hljómsveitin þriggja daga afmælisveislu 17. 18. og 19. desember í Austurbæjarbíó við Snorrabraut.
Í þessari þriggja daga afmælisveislu mun Retro Stefson gera ferlinum rækileg skil með þeim hætti sem hljómsveitinni einni er lagið. Gestir troða upp í bland við ýmsar óvæntar uppákomur.
Austurbæjarbíó varð fyrir valinu til að mynda þétta og sveitta stemmingu en líka til að sækja í ræturnar. Retro Stefson fæddist jú bara hinum megin við Snorrabrautina í Austurbæjarskóla.
Þetta verður þétt, sveitt en umfram allt ógeðslega skemmtilegt! Dönsum saman og fögnum Retro Stefson á þessum tímamótum!