Eftir tíu ár í leiknum er komið að því — Joey Christ heldur sína fyrstu tónleika í Austurbæ 20. desember!
Joey gaf nýverið út sína fimmtu plötu, Joey 3, og mun flytja lög af henni ásamt áður útgefnu efni.
Fjöldi gesta mætir á svið og fjörið verður allsráðandi. Þetta verður partý sem þú vilt ekki missa af!
20 ára aldurstakmark nema í fylgd með fullorðnum.