Úrvalsdeildin verður aftur á dagskrá næsta vetur, en í þetta sinn keppa 16 pílukastarar með svipuðu fyrikomulagi og í fyrra. Allir 16 keppendurnir í Úrvalsdeildinni keppa a.m.k. 2 kvöld í beinni útsendingu en öll kvöldin að úrslitakvöldinu undanskyldu verða leikinn í 8 manna útsláttarfyrirkomulagi eins og í fyrra og vinna leikmenn sér inn stig eftir hvert kvöld.
Kvöldin eru í beinni á SÝN og aðgangur í húsið er ókeypis og opið öllum.